KILROY Iceland

 

Er KILROY að leita að þér?

 

KILROY Ísland er að leita af ferðaráðgjafa í fullt starf.

Dreymir þig um að starfa hjá framsæknu alþjóðlegu fyrirtæki sem sérhæfir sig í að aðstoða unga ferðalanga láta drauma sína rætast? Þá gæti verið að við séum að leita að þér!

 

Um okkur

KILROY Ísland er ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í ferðalögum á heimsvísu. Við sérsníðum ferðir að þörfum ungra einstaklinga sem vilja leggja land undir fót og upplifa menningu og fegurðina sem heimurinn býður upp á. Ferðalögin okkar byggja á þýðingarmiklum upplifunum með sjálfbærum kostum. Við leggjum mikið upp úr því að kynna Íslendingum fyrir því að ferðast langt en hægt, uppgötva sjálfa/n sig og hafa gaman. Við trúum því að ferðalög geti mótað okkur og umhverfið á jákvæðan hátt og leggjum mikið upp úr einlægri og persónulegri þjónustu við okkar viðskiptavini og deilum eigin upplifunum og reynslu með sér útbúnum ferðaplönum fyrir okkar viðskiptavini.

Við bjóðum upp á ungan og skemmtilegan vinnustað þar sem við deilum ástríðu okkar fyrir ferðalögum á framandi slóðir. Gakktu til liðs við okkur til að búa til sanna heimsborgara!

Saga KILROY nær aftur til ársins 1946, skömmu eftir seinni heimstyrjöldina. Þar hófst grunnurinn að skipulögðum ferðalögum fyrir ungt fólk og námsmenn. Við erum leiðandi í skipulagningu á ferðalögum fyrir ungt fólk á Íslandi, Belgíu, Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Bretlandi og Hollandi. KILROY er hluti af föruneyti fyrirtækja í eigu KILROY International A/S þar sem höfuðstöðvar fyrirtækisins eru staðsettar í Kaupmannahöfn, Danmörku. Árið 2023 velti samstæðan um 32 milljörðum íslenskra króna með rúmlega 400 starfsmenn. Á Íslandi starfa 12 starfsmenn.

Upplýsingar um starfið

KILROY á Íslandi er að leita að ferðaráðgjafa í fullt starf til að slást í lið með okkar glæsilega teymi á Íslandi.

Skrifstofa okkar er staðsett miðsvæðis í Reykjavík. Vinnudagurinn er frá 9-17 alla virka daga.

Helsta starf ferðaráðgjafa okkar er að veita framúrskarandi og persónulega þjónustu við okkar viðskiptavini og hjálpa þeim að láta drauma sína rætast.

Þú munt verða hluti af mjög samheldnu og reynslumiklu teymi með árangursdrifin markmið og mikla áherslu á liðsanda og þjónustu við viðskiptavini.

 

 

 

Hverjum erum við að leita að?

Við berum miklar væntingar til þín – þú ættir líka að hafa þær til okkar!
Fyrir utan okkar eigin ástríðu fyrir ferðalögum erum við að leita að einstaklingi sem:

  • Hefur ferðareynslu til mismunandi menningarheima og framandi staða
  • Er tilbúinn til að deila ferðareynslu sinni á kynningum og viðburðum á vegum KILROY – bæði stafrænt og í persónu
  • Er öruggur í sölu og metnaðarfullu umhverfi
  • Er framtakssamur og getur unnið með metnaðarfull markmið
  • Er ábyrgðarfullur, skipulagður og sjálfsstæður í vinnubrögðum
  • Getur sýnt yfirvegun þegar álag er mikið og mörg verkefni sem þarf að afgreiða hratt og örugglega
  • Er alltaf tilbúinn að læra og þroskast í starfi
  • Er með mikla samskiptahæfni, hress og skemmtilegur

Reynsla

  • Víðtæk ferðareynsla
  • Reynsla af sölu og/eða að starfa við flókin kerfi er kostur
  • Vel talandi og skrifandi á ensku og íslensku

 

Við bjóðum uppá

  • Metnaðarfullan og samheldinn vinnustað sem er partur af ungu alþjóðlegu umhverfi
  • Stöðugri þjálfun starfsmanna
  • Samkeppnishæf laun, árangurstengda bónusa og ýmis ferðatengd fríðindi
  • Stórskemmtilegan vinnustað með frábæru samstarfsfólki

 

Ráðningarferlið

Ef þú sérð þig sem hluta af okkar teymi, endilega sendu okkur ferilskrá og smá kynningarbréf um af hverju þú vilt sækja um – ekki seinna en 14. apríl. Ef þú hefur einhverjar athugasemdir eða spurningar til okkar, ekki hika við að hafa samband við sölu- og rekstrarstjóra okkar Ingólf Helga. Hægt er að hafa samband með því að senda tölvupóst á inhe@kilroy.is/repe@kilroy.is eða í síma 517 70 10.

Þegar umsóknarfresturinn er liðinn munum við fara í gegnum allar umsóknir og hafa samband að því ferli loknu. Allir umsækjendur munu heyra frá okkur.

 

 

 

Type of employment Permanent position
Contract type Full time
City Reykjavík
Country Iceland
Reference number 2024/9
Contact
  • Ingólfur Helgi Héðinsson, +3545177010
Published 19.Mar.2024
Last application date 15.Apr.2024 11:59 PM CEST

Return to job vacancies